R Y T M Í S K   T Ó N L I S T

Viðmiðanir fyrir einkunnagjöf í rytmískri tónlist

Grunnpróf í söng

 

Verk     af 15

  • Sannfærandi flutningur
  • Tæknilegt öryggi
  • Gott vald á inntónun, tónmyndun og mótun
  • Góð tilfinning fyrir spuna, hendingamótun, flæði og uppbyggingu
  • Góð tilfinning fyrir hryn
  • Nótnaval í spuna ber vott um góðan hljómrænan skilning
  • Góð tilfinning fyrir formi
  • Góð tilfinning fyrir stíl
  • Mjög góður samleikur
  • Góður textaframburður
  • Sannfærandi textatúlkun
  • Augljós skilningur á innihaldi texta
14/15

  • Allgóður heildarsvipur
  • Allgott tæknilegt öryggi
  • Allgott vald á inntónun, tónmyndun og mótun
  • Allgóð tilfinning fyrir spuna, hendingamótun, flæði og uppbyggingu
  • Allgóð tilfinning fyrir hryn
  • Nótnaval í spuna ber vott um allgóðan hljómrænan skilning
  • Allgóð tilfinning fyrir formi
  • Allgóð tilfinning fyrir stíl
  • Allgóður samleikur
  • Allgóður textaframburður
  • Allsannfærandi textatúlkun
  • Merkjanlegur skilningur á innihaldi texta
12/13

  • Viðunandi heildarsvipur
  • Viðunandi tæknilegt öryggi
  • Viðunandi vald á inntónun, tónmyndun og mótun
  • Viðunandi tilfinning fyrir spuna, hendingamótun, flæði og uppbyggingu
  • Viðunandi tilfinning fyrir hryn
  • Nótnaval í spuna ber vott um viðunandi hljómrænan skilning
  • Viðunandi tilfinning fyrir formi
  • Viðunandi tilfinning fyrir stíl
  • Viðunandi samleikur
  • Viðunandi textaframburður
  • Viðunandi textatúlkun
9/10/11

  • Skortur á flæði og öryggi
  • Inntónun, tónmyndun og mótun ábótavant
  • Lítil tilfinning fyrir músíkalskri heild
  • Slök hryntilfinning
  • Lítil tilfinning fyrir stíl
  • Spuni ómarkviss og nótnavali verulega ábótavant
  • Mistök og hlé í flutningi
  • Samleik ábótavant
  • Textaframburði ábótavant
  • Lítil textatúlkun
6/7/8

  • Heildarflutningur ófullnægjandi
  • Inntónun, tónmyndun og mótun mjög áfátt
  • Nótnaval í spuna mjög slæmt og ber vott um lítinn hljómrænan skilning
  • Mjög slakt hrynskyn
  • Samleikur óviðunandi
  • Textameðferð áfátt
1/2/3/4/5

  • Verk ekki flutt
0

 

Safnlisti af 15

  • Mjög góð kunnátta
  • Sannfærandi heildarflutningur
14/15

  • Allgóð kunnátta
  • Allgóður heildarflutningur
12/13

  • Viðunandi kunnátta
  • Viðunandi heildarflutningur
9/10/11

  • Kunnáttu talsvert ábótavant
  • Heildarflutningur ekki fyllilega sannfærandi
6/7/8

  • Kunnátta ófullnægjandi
  • Heildarflutningur ófullnægjandi
1/2/3/4/5

  • Verk ekki flutt
0

 

Raddæfingar af 15

Miðað er við að nemendur flytji hverja raddæfingu í nokkrum misháum tóntegundum.


  • Sannfærandi flutningur
  • Gott vald á inntónun, tónmótun, tónmyndum og sérhljóðum
  • Jöfn tóngæði á öllu raddsviðinu
14/15

  • Öruggur flutningur
  • Smávægileg vandamál í inntónun, tónmótun, tónmyndun og sérhljóðamyndun
  • Alljöfn tóngæði á öllu raddsviðinu
12/13

  • Allöruggur flutningur
  • Greinilegir erfiðleikar í inntónun, tónmótun, tónmyndun og sérhljóðamyndun
  • Tóngæði ekki jöfn á öllu raddsviðinu
  • Takmarkaðar styrkleikabreytingar
  • Minniháttar ónákvæmni
9/10/11

  • Ófullnægjandi flutningur
  • Inntónun, tónmyndun, tónmótun og sérhljóðamyndun ábótavant
  • Greinileg mistök
  • Litlar andstæður í tónstyrk eða styrkleikabreytingar hafa áhrif á inntónun, tónmyndun og sérhljóðamyndun
  • Nokkrar raddæfingar virðast ekki nægilega vel undirbúnar
6/7/8

  • Nokkrar æfingar ekki sungnar
  • Inntónun, tónmyndun, tónmótun og sérhljóðamyndun áfátt
  • Engar tilraunir til styrkleikabreytinga eða styrkleikabreytingar hafa veruleg áhrif á inntónun, tónmyndun og sérhljóðamyndun
  • Undirbúningi ábótavant
  • Mikið um rangar nótur og hryn
1/2/3/4/5

  • Æfingar ekki sungnar
0

 

Tónstigar og hljómar af 15

  • Öruggt og áreynslulaust
  • Gott flæði
  • Gott vald á inntónun, tónmyndun og mótun
  • Bregst fljótt við fyrirmælum
14/15

  • Vel undirbúið
  • Allgott flæði
  • Einstaka feilnótur
  • Þarfnast of langs umhugsunartíma í einstaka tilvikum
12/13

  • Varkárt
  • Allnokkrar feilnótur
  • Þarfnast of langs umhugsunartíma í flestum tilvikum
9/10/11

  • Ekki nægilega vel undirbúið
  • Of hægt leikið miðað við kröfur greinanámskrár
  • Ójafnt
  • Mikið um mistök
  • Óeðlilega langur umhugsunartími
6/7/8

  • Nokkrir tónstigar/hljómar ekki leiknir
  • Ekki sungið utanbókar
  • Ófullnægjandi
1/2/3/4/5

  • Tónstigar/hljómar ekki fluttir
0

 

Val af 10

Mat samkvæmt eftirfarandi atriðum eftir því sem við á


  • Mjög góður heildarsvipur
  • Sannfærandi flutningur
  • Tæknilegt öryggi
  • Persónuleg tjáning greinileg
  • Greinileg tilfinning fyrir framvindu og formi
  • Sannfærandi tónsmíð eða útsetning
9/10

  • Allgóður heildarsvipur
  • Allgott tæknilegt öryggi
  • Persónuleg tjáning merkjanleg
  • Allgóð tilfinning fyrir framvindu og formi
  • Allsannfærandi tónsmíð eða útsetning
7/8

  • Viðunandi heildarsvipur
  • Viðunandi tæknilegt öryggi
  • Varkárt, stundum hikandi
  • Viðunandi tilfinning fyrir framvindu og formi
6

  • Skortur á flæði og öryggi
  • Lítil tilfinning fyrir músíkalskri heild
  • Tíð mistök og hlé í flutningi
  • Lítil tilfinning fyrir framvindu og formi
4/5

  • Flæði og öryggi áfátt
  • Skortir tilfinningu fyrir framvindu og formi
2/3

  • Viðfangsefni ekki flutt
0

 

Óundirbúinn nótnalestur af 10

Mat samkvæmt eftirfarandi atriðum eftir því sem við á


  • Sannfærandi flutningur
  • Viðeigandi hraði
  • Viðeigandi tónstyrkur og túlkun
  • Réttar nótur og hrynur
  • Sannfærandi nótnaval og hrynur í spuna
  • Sannfærandi stíll og flæði í spuna
9/10

  • Oftast réttar nótur og hrynur
  • Stöðugur púls
  • Að mestu sannfærandi nótnaval og hrynur í spuna
  • Að mestu sannfærandi stíll og flæði í spuna
7/8

  • Hikandi, þó yfirleitt réttar nótur og hrynur
  • Full varkárt en greinilegur púls
  • Viðunandi nótnaval og hrynur í spuna
  • Viðunandi stíll og flæði í spuna
6

  • Mikið um rangar nótur og/eða hryn
  • Hendingamótun áfátt
  • Skortur á stöðugum púlsi
  • Skortur á tilfinningu fyrir tóntegund
  • Spuni ekki nægilega sannfærandi
4/5

  • Mjög mikið um rangar nótur og hryn
  • Inntónun, tónmyndun og mótun áfátt
  • Spuni samhengislaus og alls ekki sannfærandi
1/2/3

  • Verkefni ekki flutt
0

 

Heildarsvipur af 5

  • Framúrskarandi flutningur
  • Örugg og viðeigandi framkoma
  • Greinilega mjög vel undirbúið próf
5

  • Góður og markviss flutningur
  • Allörugg og að mestu viðeigandi framkoma
  • Greinilega vel undirbúið próf
4

  • Viðunandi flutningur
  • Viðunandi öryggi og framkoma
  • Verðskuldar að standast próf að undanskildu einu eða tveimur atriðum (nánar tilgreint)
3

  • Óöruggt og skortur á sannfærandi flutningi
  • Óviðunandi framkoma
  • Undirbúningi prófsins virðist áfátt
2

  • Óviðunandi flutningur
  • Frammistaða í flestum prófþáttum ófullnægjandi
  • Undirbúningur prófsins virðist ófullnægjandi
1