K L A S S Í S K   T Ó N L I S T

Prófþættir í klassískri tónlist

Þverflauta

Grunnpróf

Á grunnprófi í þverflautuleik skal nemendi leika þrjú verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á grunnprófi í þverflautuleik fari ekki fram yfir 30 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Spinni einradda út frá gefnu upphafi, hljómferli eða lagi, með eða án undirleiks.
    2. Leiki frumsamið verk eða eigin útsetningu.
    3. Leiki stutt alþýðulag eða þjóðlag sem lært hefur verið eftir eyra.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
    Sjá upplýsingar um prófkröfur í óundirbúnum nótnalestri (pdf-skjal) í þverflautuleik.

  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á grunnprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á grunnprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk

  • Claude Arrieu: Pièce pour flûte et piano
  • Georg Friedrich Händel: Bourrée – Úr: Baroque Flute Pieces I
  • Joseph Haydn: Serenade – Úr: Flute Solos
  • Robin Milford: Air nr. 1 – Úr: Three Airs
  • Harold Arlen: Over the Rainbow – Úr: Fritzén/Öhman: Flöjten och jag III
  • Elías Davíðsson: Tyrkneskur pipar – Úr: Flutes, Duos - trios

Dæmi um æfingar

  • Giuseppe Gariboldi: Æfing nr. 27 – Úr: Harris/Adams: 76 Graded Studies for Flute [sama æfing er nr. 5 í Vester: 100 Easy Classical Studies for Flute]
  • Heinrich Soussmann: Æfing nr. 38 – Úr: Vester: 125 Easy Classical Studies
Miðpróf

Á miðprófi í þverflautuleik skal nemendi leika þrjú verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á miðprófi í þverflautuleik fari ekki fram yfir 45 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Leiki verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og önnur miðprófsverkefni.
    2. Spinni einradda út frá gefnu upphafi, hljómferli eða lagi með eða án undirleiks.
    3. Leiki frumsamið verk eða eigin útsetningu.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
    Sjá upplýsingar um prófkröfur í óundirbúnum nótnalestri (pdf-skjal) í þverflautuleik.
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á miðprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á miðprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk

  • Michel Blavet: Sónata op. 2, nr. 4 í g-moll
  • Philippe Gaubert: Madrigal
  • Benjamin Godard: Svíta; Allegretto og Idylle
  • Georg Friedrich Händel: Sónata í G-dúr
  • Wolfgang Amadeus Mozart: Andante K 315
  • Peter Maxwell Davies: Recitando-Andante-Allegro – Úr: Wastall: Contemporary Music for Flute

Dæmi um æfingar

  • Giuseppi Gariboldi: Æfing nr. 86 – Úr: Vester: 100 Classical Studies for Flute
  • Louis Drouet: Æfing nr. 53 – Úr: Harris / Adams: 76 Graded Studies for Flute [sama æfing er nr. 72 í Vester: 100 Classical Studies for Flute]
Framhaldspróf

Á framhaldsprófi í þverflautuleik skal nemandi leika þrjú verk, eina æfingu og útdrætti úr hljómsveitarverkum. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á framhaldsprófi í þverflautuleik fari ekki fram yfir 60 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (12 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (12 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Útdrættir úr hljómsveitarverkum (12 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Leiki verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og önnur framhaldsprófsverkefni.
    2. Leiki samleiksverk þar sem hann gegnir veigamiklu hlutverki.
    3. Leiki tónverk á annað hljóðfæri úr sömu fjölskyldu og aðalhljóðfæri.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á framhaldsprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á framhaldsprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk

  • Johann Sebastian Bach: Sónata í E-dúr
  • François Couperin: Concert royal í e-moll
  • Wolfgang Amadeus Mozart: Konsert í D-dúr
  • Francis Poulenc: Sónata
  • Paul Hindemith: Sónata
  • Kazuo Fukushima: Requiem [einleiksverk]

Dæmi um æfingar

  • Antoine Hugot: Æfing nr. 20 – Úr: Vester: 50 Classical Studies for Flute
  • Anton Bernhard Fürstenau: Æfing nr. 15 – Úr: Vester: 50 Classical Studies for Flute

Dæmi um útdrætti úr hljómsveitarverkum

  • Johann Sebastian Bach: „Aus Liebe will mein Heiland sterben“ úr Mattheusarpassíunni
  • Wolfgang Amadeus Mozart: Sinfónía nr. 41
  • Ludwig van Beethoven: Sinfónía nr. 3
  • Johannes Brahms: Sinfónía nr. 1
  • Piotr Ilyitch Tschaikovsky: Sinfónía nr. 4
  • Maurice Ravel: Daphnis et Chloé
Tónleikar

Að loknu framhaldsprófi í þverflautuleik skal nemandi leika 30-60 mínútna langa efnisskrá á tónleikum innan eða utan skólans. Fyrir frammistöðu á tónleikunum er gefin umsögn en ekki einkunn. Ekki er nauðsynlegt að halda tónleikana á sama skólaári og hljóðfæraprófið fer fram. Séu prófið og tónleikarnir haldnir á sama skólaári er heimilt að nota alla efnisskrá prófsins á tónleikunum. Fari tónleikar fram síðar skal að minnsta kosti helmingur efnisskrárinnar endurnýjaður. Gæta þarf þess að efnisskrá sé fjölbreytt og vel saman sett.