K L A S S Í S K   T Ó N L I S T

Prófþættir í klassískri tónlist

Saxófónn

Grunnpróf

Á grunnprófi í saxófónleik skal nemendi leika þrjú verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á grunnprófi í saxófónleik fari ekki fram yfir 30 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Spinni einradda út frá gefnu upphafi, hljómferli eða lagi, með eða án undirleiks.
    2. Leiki frumsamið verk eða eigin útsetningu.
    3. Leiki stutt alþýðulag eða þjóðlag sem lært hefur verið eftir eyra.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
    Sjá upplýsingar um prófkröfur í óundirbúnum nótnalestri (pdf-skjal) í saxófónleik.
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á grunnprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á grunnprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk – altsaxófónn

  • J. S. Bach: Air úr hljómsveitarsvítu nr. 3 – Úr: Both: Klassische Saxophon-Soli
  • Bizet: Seguidilla (úr Carmen) – Úr: Harrison: Amazing solos
  • Fauré: Pavane – Úr: Lanning: The Classic Experience
  • Martini: Romance célèbre – Úr: Mule: Pièces classiques célèbres, 1. hefti
  • W. A. Mozart: Turkish Rondo – Úr: Lanning: The Classic Experience
  • Pogson: Slow Train Blues – Úr: The Way to Rock [bók fyrir altsaxófón]

Dæmi um tónverk – tenórsaxófónn

  • J. S. Bach: Air úr hljómsveitarsvítu nr. 3 – Úr: Both: Klassische Saxophon-Soli
  • Evans: Sweet Corn – Úr: Wastall: First Repertoire Pieces [bók fyrir tenórsaxófón]
  • Haydn: Serenade – Úr: Harle: Classical Album
  • Pogson: Slow Train Blues – Úr: The Way to Rock [bók fyrir tenórsaxófón]

Dæmi um æfingar, allir saxófónar

  • Æfing nr. 41 – Úr: Davies/Harris: 80 Graded Studies for Saxophone, 1. hefti
  • Æfing nr. 17 – Úr: Samie/Mule: Vingt-quatre études faciles
Miðpróf

Á miðprófi í saxófónleik skal nemendi leika þrjú verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á miðprófi í saxófónleik fari ekki fram yfir 45 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Leiki verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og önnur miðprófsverkefni.
    2. Spinni einradda út frá gefnu upphafi, hljómferli eða lagi með eða án undirleiks.
    3. Leiki frumsamið verk eða eigin útsetningu.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
    Sjá upplýsingar um prófkröfur í óundirbúnum nótnalestri (pdf-skjal) í saxófónleik.
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á miðprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á miðprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um verk – altsaxófónn

  • Bach: Sicilienne og Allegro – Úr: Teal: Solos for the Alto Saxophone Player
  • Bonneau: Suite
  • Ibert: Histoires, 1. og 2. kafli
  • Maurice: Tableaux de Provence, 3. og 4. kafli
  • Schumann: Fantasy Piece – Úr: Teal: Solos for the Alto Saxophone Player
  • von Koch: Monolog [einleiksverk]

Ef miðpróf er leikið á tenórsaxófón skulu verkin vera af sambærilegri þyngd og miðprófsverkefni fyrir altsaxófón.

Dæmi um æfingar, allir saxófónar

  • Davies / Harris: Æfing nr. 79 – Úr: 80 Graded Studies for Saxophone, 2. hefti
  • Ferling / Mule: Æfing nr. 36 – Úr: 48 Studies
Framhaldspróf

Á framhaldsprófi í saxófónleik skal nemandi leika þrjú verk, eina æfingu og útdrætti úr hljómsveitarverkum. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á framhaldsprófi í saxófónleik fari ekki fram yfir 60 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (12 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (12 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Útdrættir úr hljómsveitarverkum (12 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Leiki verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og önnur framhaldsprófsverkefni.
    2. Leiki samleiksverk þar sem hann gegnir veigamiklu hlutverki.
    3. Leiki tónverk á annað hljóðfæri úr sömu fjölskyldu og aðalhljóðfæri.
  • Óundirbúinn nótnalestur og tónflutningur (10 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á framhaldsprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á framhaldsprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk

  • Bach / Mule: Sónata nr. 6
  • Creston: Sónata, 1. þáttur
  • Glazounov: Konsert
  • Ibert: Concertino da camera, 1. þáttur
  • Milhaud: Scaramouche, 1. þáttur
  • Noda: Improvisation 1 [einleiksverk]

Dæmi um útdrætti úr hljómsveitarverkum

  • Bizet: L’Arlésienne, svítur 1 og 2
  • Khachaturian: Sabre Dance
  • Kodály: Háry Janos Suite
  • Mussorgsky / Ravel: Myndir á sýningu
  • Prokofieff: Rómeó og Júlía, svítur 1 og 2 [tenór]
  • Ravel: Bolero [sópran og tenór]

Dæmi um æfingar

  • Lacour: Æfing nr. 1 – Úr: Huit études brilliantes
  • Bozza: Æfing nr. 7 – Úr: Douze études-caprices
Tónleikar

Að loknu framhaldsprófi í saxófónleik skal nemandi leika 30-60 mínútna langa efnisskrá á tónleikum innan eða utan skólans. Fyrir frammistöðu á tónleikunum er gefin umsögn en ekki einkunn. Ekki er nauðsynlegt að halda tónleikana á sama skólaári og hljóðfæraprófið fer fram. Séu prófið og tónleikarnir haldnir á sama skólaári er heimilt að nota alla efnisskrá prófsins á tónleikunum. Fari tónleikar fram síðar skal að minnsta kosti helmingur efnisskrárinnar endurnýjaður. Gæta þarf þess að efnisskrá sé fjölbreytt og vel saman sett.