K L A S S Í S K   T Ó N L I S T

Prófþættir í klassískri tónlist

Kontrabassi

Grunnpróf

Á grunnprófi í kontrabassaleik skal nemendi leika þrjú verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á grunnprófi í kontrabassaleik fari ekki fram yfir 30 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Spinni einradda út frá gefnu upphafi, hljómferli eða lagi, með eða án undirleiks.
    2. Leiki frumsamið verk eða eigin útsetningu.
    3. Leiki stutt alþýðulag eða þjóðlag sem lært hefur verið eftir eyra.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
    Sjá upplýsingar um prófkröfur í óundirbúnum nótnalestri (pdf-skjal) í kontrabassaleik.
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á grunnprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á grunnprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk

  • F. Boaden: Petite Suite for Double Bass and Piano, 2. eða 4. kafli, Elegy eða March
  • A. Ridout: Animal Band nr. 101 – Úr: Emery: Bass is Best! Yorke Mini Bass Book 1
  • G. F. Händel: Mars (úr Scipio) nr. 23 – Úr: Hartley (úts.): Double Bass Solo 1, 50 Melodies
  • S. Lancen: Berceuse for Baby Hippopotamus
  • G. F. Händel: Arioso – Úr: Fredin: Kontrabasen och jag, 1. hefti
  • G. Halahan,: Bagatelle nr. 4 – Úr: Bagatelles pour Contrebasse

Dæmi um æfingar

  • Æfing nr. 6 í D-dúr – Úr: Simandl: New Method for String Bass, 1. hefti, bls. 23
  • Æfing nr. 12 í a-moll – Úr: Bottesini: Method for Double Bass, 1. hefti
Miðpróf

Á miðprófi í kontrabassaleik skal nemendi leika þrjú verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á miðprófi í kontrabassaleik fari ekki fram yfir 45 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Leiki verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og önnur miðprófsverkefni.
    2. Spinni einradda út frá gefnu upphafi, hljómferli eða lagi með eða án undirleiks.
    3. Leiki frumsamið verk eða eigin útsetningu.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
    Sjá upplýsingar um prófkröfur í óundirbúnum nótnalestri (pdf-skjal) í kontrabassaleik.
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á miðprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á miðprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk

  • L. van Beethoven: Sónatína – Úr: Hartley (útg.): Double Bass Solo 1
  • A. Capuzzi: Konsert í D-dúr, 1. kafli, Allegro, eða Konsert í F-dúr, 1. kafli, Allegro
  • Gerhard Deutschmann: The Fairground, nr. 33 – Úr: Yorke Solos, 1. hefti
  • D. Giovannino: Sónata í F-dúr, 1. kafli, Allegro
  • B. Marcello: Sónata í G-dúr, 3. og 4. kafli
  • A. Vivaldi / Zimmermann: Sónata nr. 1 í B-dúr, 3. og 4. kafli, Largo og Allegro

Dæmi um æfingar

  • Æfing nr. 31 í D-dúr – Úr: Bottesini: Method for Double Bass, 1. hefti
  • Æfing nr. 2 í C-dúr – Úr: Simandl: New Method for String Bass, 2. hefti, bls. 5
Framhaldspróf

Á framhaldsprófi í kontrabassaleik skal nemandi leika þrjú verk, eina æfingu og útdrætti úr hljómsveitarverkum. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á framhaldsprófi í kontrabassaleik fari ekki fram yfir 60 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (12 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (12 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Útdrættir úr hljómsveitarverkum (12 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Leiki verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og önnur framhaldsprófsverkefni.
    2. Leiki samleiksverk þar sem hann gegnir veigamiklu hlutverki.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á framhaldsprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á framhaldsprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk

  • G. Cimador: 1. þáttur úr konsert í G-dúr
  • A. Corelli / Zimmermann: Sónata í d-moll
  • D. Dragonetti: Solo in G (Variazioni con Tema di Minuetto)
  • Gordon Jacob: A Little Concerto, 3. kafli Allegro
  • Alan Ridout: Konsert, 1. kafli Grave
  • A. Vivaldi: Sónata nr. 1 í B-dúr

Dæmi um útdrætti úr hljómsveitarverkum

  • B. Britten: Variation H úr „The Young Persons Guide to the Orchestra“ – Úr: Hartley, Keith: Double Bass Solo 2, nr. 25
  • G. Verdi: Solo úr Othello, 4. þætti – Úr: Hartley: Double Bass Solo 2, nr. 30, eða: Simandl: New Method for String Bass, 1. hefti, bls. 121
  • L. van Beethoven: Sinfónía nr. 5 – Úr: Zimmerman (útg.): Orchestral Excerpts, 7. hefti
  • J. Brahms: Sinfónía nr. 2 – Úr: Zimmerman (útg.): Orchestral Excerpts, 1. hefti
  • W. A. Mozart: Sinfónía nr. 40 – Úr: Zimmerman (útg.): Orchestral Excerpts, 1. hefti
  • R. Strauss: Tod und Verklärung – Úr: Madensky (útg.): Orchesterstudien aus den Symphonischen

Dæmi um æfingar

  • Æfing nr. 5 – Úr: Bottesini: Method for Double Bass, 2. hefti
  • Æfing nr. 1 – Úr: Simandl, F.: Gradus ad Parnassum, 1. hefti
Tónleikar

Að loknu framhaldsprófi í kontrabassaleik skal nemandi leika 30-60 mínútna langa efnisskrá á tónleikum innan eða utan skólans. Fyrir frammistöðu á tónleikunum er gefin umsögn en ekki einkunn. Ekki er nauðsynlegt að halda tónleikana á sama skólaári og hljóðfæraprófið fer fram. Séu prófið og tónleikarnir haldnir á sama skólaári er heimilt að nota alla efnisskrá prófsins á tónleikunum. Fari tónleikar fram síðar skal að minnsta kosti helmingur efnisskrárinnar endurnýjaður. Gæta þarf þess að efnisskrá sé fjölbreytt og vel saman sett.