K L A S S Í S K   T Ó N L I S T

Prófþættir í klassískri tónlist

Blokkflauta

Grunnpróf

Á grunnprófi í blokkflautuleik skal nemendi leika þrjú verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á grunnprófi í blokkflautuleik fari ekki fram yfir 30 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Spinni einradda út frá gefnu upphafi, hljómferli eða lagi, með eða án undirleiks.
    2. Leiki frumsamið verk eða eigin útsetningu.
    3. Leiki stutt alþýðulag eða þjóðlag sem lært hefur verið eftir eyra.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
    Sjá upplýsingar um prófkröfur í óundirbúnum nótnalestri (pdf-skjal) í blokkflautuleik.
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á grunnprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á grunnprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk – sópranblokkflauta

  • John W. Duarte: Cradle Song (II) – Úr: Three simple Songs without Words
  • Georg Friedrich Händel: Bourrée nr. 11 – Úr: 12 Stücke
  • Jón Ásgeirsson: Maístjarnan – Úr: Jón G. Þórarinsson: Sópranblokkflautan
  • Ludwig van Beethoven: Ecossaise – Úr: Hunt (útg.): Klassisches Spielbuch, Leichte Klassische Stücke
  • Wolfgang Amadeus Mozart: Menúett nr. 2 – Úr: Salzburger Menuette
  • Leopold Mozart: Alter Tanz (Bourrée) – Úr: Runge (útg.): Solobuch für Sopranblockflöte, 1. hefti

Dæmi um æfingar – sópranblokkflauta

  • Georg Friedrich Händel: Allegretto nr. 22 – Úr: Keller: Etüden für Sopranflöte
  • Hans-Martin Linde: Echoübung nr. 13 – Úr: Die kleine Übung

Dæmi um tónverk – altblokkflauta

  • John W. Duarte: Cradle Song (II) – Úr: Three simple Songs without Words
  • A. van Heerde: Boree nr. VIII [einleiksverk] – Úr: Einzelstücke und Suiten
  • Óþekktur Höfundur: Angloise nr. 4 – Úr: Fünf leichte Suiten aus dem Barock: Svítu nr. I
  • Wolfgang Amadeus Mozart: Menúett – Úr: Helga Sighvatsdóttir og Sigríður Pálmadóttir: Ómblíða flautan II; bls. 78
  • James Hook: Sónatína nr. 1 í F-dúr, Rondó
  • Ungarischer Tanz [einleiksverk] – Úr: Runge (útg.): Solobuch für Altblockflöte, 1. hefti, bls. 6

Dæmi um æfingar – altblokkflauta

  • Molly McAlpin – Úr: Dinn: More Tunes for my Treble Recorder, nr. 26
  • Georg Friedrich Händel: Allegretto – Úr: Keller: Etüden für Altflöte, nr. 22
Miðpróf

Á miðprófi í blokkflautuleik skal nemendi leika þrjú verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á miðprófi í blokkflautuleik fari ekki fram yfir 45 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Leiki verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og önnur miðprófsverkefni.
    2. Spinni einradda út frá gefnu upphafi, hljómferli eða lagi með eða án undirleiks.
    3. Leiki frumsamið verk eða eigin útsetningu.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
    Sjá upplýsingar um prófkröfur í óundirbúnum nótnalestri (pdf-skjal) í blokkflautuleik.
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á miðprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á miðprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk

  • Francesco Bononcini: Divertimento III
  • Einleiksverk nr. 1 – Úr: Giesbert: Fifteen Solos for Treble Recorder
  • Georg Friedrich Händel: Sónata í F-dúr
  • Hans-Martin Linde: Music for a Bird
  • Jean Baptiste Loeillet de Gant: Sónata op. 1, nr. 1
  • Georg Philipp Telemann: Partíta nr. 5 [sópranblokkflauta]

Dæmi um æfingar

  • Hans-Martin Linde: Æfing nr. 11 – Úr: Neuzeitliche Übungsstücke
  • Hans-Ulrich Staeps: Æfing nr. 6 – Úr: Das tägliche Pensum
Framhaldspróf

Á framhaldsprófi í blokkflautuleik skal nemandi leika þrjú verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á framhaldsprófi í blokkflautuleik fari ekki fram yfir 60 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Leiki verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og önnur framhaldsprófsverkefni.
    2. Leiki samleiksverk þar sem hann gegnir veigamiklu hlutverki.
    3. Leiki tónverk á annað hljóðfæri úr sömu fjölskyldu og aðalhljóðfæri.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á framhaldsprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á framhaldsprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk

  • Johann Sebastian Bach: Sónata í F-dúr, BWV 1031
  • Jacob van Eyck: Malle Symen [einleiksverk]
  • Georg Friedrich Händel: Sónata í d-moll
  • Roland Moser: Alrune [einleiksverk]
  • Francesco Mancini: Sónata IV í a-moll
  • Pierre Philidor: Svíta nr. 5

Dæmi um æfingar

  • Hans-Martin Linde: Æfing nr. 1: Anklänge – Úr: Blockflöte virtuos
  • Helmut Mönkemeyer: Æfing nr. 59 – Úr: Handleitung für das Spiel der Altblockflöte
Tónleikar

Að loknu framhaldsprófi í blokkflautuleik skal nemandi leika 30-60 mínútna langa efnisskrá á tónleikum innan eða utan skólans. Fyrir frammistöðu á tónleikunum er gefin umsögn en ekki einkunn. Ekki er nauðsynlegt að halda tónleikana á sama skólaári og hljóðfæraprófið fer fram. Séu prófið og tónleikarnir haldnir á sama skólaári er heimilt að nota alla efnisskrá prófsins á tónleikunum. Fari tónleikar fram síðar skal að minnsta kosti helmingur efnisskrárinnar endurnýjaður. Gæta þarf þess að efnisskrá sé fjölbreytt og vel saman sett.