K L A S S Í S K   T Ó N L I S T

Prófþættir í klassískri tónlist

Barítónhorn

Grunnpróf

Á grunnprófi í barítónhornleik skal nemendi leika þrjú verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á grunnprófi í barítónhornleik fari ekki fram yfir 30 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Spinni einradda út frá gefnu upphafi, hljómferli eða lagi, með eða án undirleiks.
    2. Leiki frumsamið verk eða eigin útsetningu.
    3. Leiki stutt alþýðulag eða þjóðlag sem lært hefur verið eftir eyra.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
    Sjá upplýsingar um prófkröfur í óundirbúnum nótnalestri (pdf-skjal) í barítónhornleik.
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á grunnprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á grunnprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk – G-lykill

  • L. v. Beethoven: Romance – Úr: Stuart: Trumpet Fancies
  • G. F. Händel: Bourrée – Úr: Stuart: Trumpet Fancies
  • G. F. Händel: Mars úr Scipio – Úr: Lawton (útg.): Old English Trumpet Tunes
  • P. I. Tchaikovsky: Franskur söngur – Úr: Wallace/Miller: First Book of Trumpet Solos
  • P. Lawrance: Dans – Úr: Badinage
  • P. Wegwood: Hot on the Line – Úr: Jazzin’ about

Dæmi um æfingar – G-lykill

  • Æfing nr. 13 – Úr: Endresen: Supplementary Studies
  • Æfing nr. 13 – Úr: Hering: 40 Progressive Etudes

Dæmi um tónverk – F-lykil

  • J. E. Galliard: Menúett úr sónötu nr. 6 – Úr: Smith: Solos for the Trombone Player
  • G. Giordani: Caro mio ben – Úr: Smith: First Solos for the Trombone Player
  • Jim Parker: Cuban Serenade – Úr: Top Line
  • P. Lawrance: Dans – Úr: Badinage
  • Camille Saint-Saëns: Royal March of the Lion – Úr: Hare: The Magic Trombone
  • P. Wegwood: Hot on the Line – Úr: Jazzin’ about

Dæmi um æfingar – F-lykill

  • Æfing nr. 24 – Úr: Endresen: Supplementary Studies
  • Æfing nr. 13 – Úr: Hering: 40 Progressive Etudes
Miðpróf

Á miðprófi í barítónhornleik skal nemendi leika þrjú verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á miðprófi í barítónhornleik fari ekki fram yfir 45 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Leiki verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og önnur miðprófsverkefni.
    2. Spinni einradda út frá gefnu upphafi, hljómferli eða lagi með eða án undirleiks.
    3. Leiki frumsamið verk eða eigin útsetningu.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
    Sjá upplýsingar um prófkröfur í óundirbúnum nótnalestri (pdf-skjal) í barítónhornleik.
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á miðprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á miðprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk – G-lykill

  • C. W. v. Gluck: Air úr Orfeus og Evridís
  • J. Hummel: The Hunting Party – Úr: Wallace/Miller: Second Book of Trumpet Solos
  • W. A. Mozart: Sónatína
  • J. Stanley: Finale úr Voluntary, op. 6 – Úr: Lawton, S.: Old English Folk Tunes, 2. hefti
  • P. I. Tchaikovsky: Chanson Napolitaine – Úr: Wallace, J./Miller, J.: Second Book of Trumpet Solos
  • G. Ph. Telemann: Svíta nr. 2, 1. og 5. kafli

Dæmi um æfingar – G-lykill

  • Æfing nr. 32 – Úr: Endresen: Supplementary Studies for Trumpet
  • Æfing nr. 36 – Úr: Hering: 40 Progressive Etudes for Trumpet

Dæmi um tónverk – F-lykil

  • J. S. Bach: Arioso – Úr: Smith: Solos for the Trombone Player
  • H. Carmichael: Stardust – Úr: Parker: Jazzed up too
  • G. Fauré: Après un rêve
  • J. E. Galliard: Sónata nr. 1, 1. og 4. kafli eða 1. og 2. kafli
  • B. Marcello / K. Brown: Sónata í g-moll, 3. kafli Allegro
  • G. F. Wagenseil: Konsert fyrir básúnu, 2. kafli – Úr: Smith: First Solos for the Trombone Player

Dæmi um æfingar – F-lykill

  • Æfing nr. 4 – Úr: Rochut: Melodious Etudes for Trombone
  • Æfing nr. 36 – Úr: Hering: 40 Progressive Etudes for Trombone
Framhaldspróf

Á framhaldsprófi í barítónhornleik skal nemandi leika þrjú verk og eina æfingu. Aðrir prófþættir eru tónstigar og brotnir hljómar, val og óundirbúinn nótnalestur, auk þess sem gefið er fyrir heildarsvip prófsins.

Miða skal við að heildarpróftími á framhaldsprófi í barítónhornleik fari ekki fram yfir 60 mínútur. Á prófinu skal nemandi að minnsta kosti flytja eitt verk utanbókar samkvæmt prófþætti 1 eða æfingu samkvæmt prófþætti 2.

Prófþættir eru þessir:

  • Þrjú ólík verk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfing (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Tónstigar og hljómar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Leiki verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og önnur framhaldsprófsverkefni.
    2. Leiki samleiksverk þar sem hann gegnir veigamiklu hlutverki.
  • Óundirbúinn nótnalestur í þremur lyklum (10 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Heildarsvipur (5 einingar).
   Dæmi um prófverkefni á framhaldsprófi

Í námskrá eru gefin eftirfarandi dæmi um prófverkefni á framhaldsprófi. Dæmunum er ætlað að skilgreina þyngdarstig prófsins. Fullt eins má velja önnur verkefni af sambærilegri þyngd.

Dæmi um tónverk

  • J. S. Bach: Sellósvíta nr. 1, Menuet 1 og 2 og Gigue [einleiksverk]
  • B. Marcello: Sónata í F-dúr
  • G. Richard: Midnight Euphonium
  • P. Sparke: Aubade
  • E. Young: Euphonium Suite
  • E. Young: Euphonium Sonata

Dæmi um æfingar

  • Æfing nr. 9 – Úr: Arban: Cornet Method, bls. 201
  • Æfing nr. 23 – Úr. Rochut: Melodious Etudes for Trombone
Tónleikar

Að loknu framhaldsprófi í barítónhornleik skal nemandi leika 30-60 mínútna langa efnisskrá á tónleikum innan eða utan skólans. Fyrir frammistöðu á tónleikunum er gefin umsögn en ekki einkunn. Ekki er nauðsynlegt að halda tónleikana á sama skólaári og hljóðfæraprófið fer fram. Séu prófið og tónleikarnir haldnir á sama skólaári er heimilt að nota alla efnisskrá prófsins á tónleikunum. Fari tónleikar fram síðar skal að minnsta kosti helmingur efnisskrárinnar endurnýjaður. Gæta þarf þess að efnisskrá sé fjölbreytt og vel saman sett.