|
Úrskurðir Prófanefndar tónlistarskóla
|
 |
|
|
|
|
|
|
|
|
Úrskurður nr. 21, 9. desember 2008
Talið var að ummæli prófdómara, sem ekki áttu við rök
að styðjast, kynnu að hafa haft áhrif á frammistöðu
nemandans í hluta viðkomandi prófþáttar. Þótti rétt
að hækka einkunn vegna prófþáttarins um tvær einingar,
úr 10 í 12, en umsögn prófdómara stóð óhögguð.
|
|
Úrskurður í heild
|
|
|
Úrskurður nr. 18, 15. júlí 2008
Talið var að þrjú verkefni á grunnprófi, þ.e. tónverk,
æfing og valverkefni, hefðu ekki verið í samræmi við
þyngdarkröfur námskrár og að frávik væru veruleg í
a.m.k. tveimur þeirra tilvika. Því þótti ekki fært að
viðurkenna prófið sem gilt áfangapróf samkvæmt
aðalnámskrá tónlistarskóla. Var ekki fallist á kæru sem
var borin fram á þeim grundvelli að tvö verkanna hefðu
áður verið flutt á grunnprófum án athugasemda af hálfu
prófdómara.
|
|
Úrskurður í heild
|
|
|
Úrskurður nr. 16, 15. október 2007
Frádráttur sjö eininga á grunnprófi, þar sem hvorki tónverk né æfing var
leikin utanbókar, var fellur niður á þeim forsendum að
prófið væri eitt fyrsta áfangaprófið frá viðkomandi
skóla og
væntanlega um byrjunarörðugleika að ræða í nýju
kerfi. Prófanefnd féllst hins vegar ekki á kæruna að
öðru leyti, m.a. að prófdómari bæri ábyrgð á atvikum
sem urðu til þess að hann komst ekki á prófstað í tæka
tíð.
|
|
Úrskurður í heild
|
|
|
Úrskurður nr. 9, 13. október 2006
Kært var yfir því að prófdómari hefði tekið sér
óeðlilega langan tíma milli prófþátta á söngprófi til
að semja umsagnir um frammistöðu próftaka. Prófanefnd
taldi ekki ástæðu til að gera sérstakar athugasemdir
vegna framkvæmdar prófsins.
|
|
Úrskurður í heild
|
|
|
|
Úrskurður nr. 8, 13. október 2006
Próftaka á miðprófi mistókst ítrekað að ljúka flutningi þriðja
viðfangsefnisins í prófinu og var í miklu ójafnvægi í
framhaldi af því. Talið var að prófdómari hefði getað
gripið til frekari úrræða en gert
var til að létta undir með próftaka við flutninginn. Var mælt fyrir
um að prófið skyldi endurtekið.
|
|
Úrskurður í heild
|
|
|
|
Úrskurður nr. 7, 29. september 2006
Prófanefnd taldi að athugasemd prófdómara um rangan hryn lags,
sem nemandi flutti sem valverkefni eftir eyra, væri ekki
réttmæt, enda yrði ekki staðhæft um réttan eða rangan
flutning verks sem lært hefði verið eftir eyra. Var umsögn
vegna valverkefnis felld niður og einkunn vegna
prófþáttarins jafnframt hækkuð.
|
|
Úrskurður í heild
|
|
|
|
Úrskurður nr. 6, 19. nóvember 2005
Tónlistarskóli mótmælti umsögn og einkunnagjöf
prófdómara í sex prófliðum á grunnprófi í
saxófónleik m.a. með samanburði við aðrar
prófúrlausnir í skólanum sama dag. Í úrskurði Prófanefndar var tekið fram
að mati prófdómara á frammistöðu nemanda á
áfangaprófi yrði ekki hnekkt með kæru til nefndarinnar.
Hins vegar var tekið til athugunar hvort greinilegt
ósamræmi væri milli umsagnar og einkunnagjafar prófdómara og komist
að þeirri niðurstöðu að svo væri ekki.
|
|
Úrskurður í heild
|
|
|
Úrskurður nr. 5, 5. nóvember 2005
Valverkefni nemanda á grunnprófi var verk sem hann skyldi
hafa lært eftir eyra. Prófdómari taldi að verkið hefði
verið leikið eftir nótum í prófinu og því var einkunn
fyrir verkefnið felld niður við útgáfu
vitnisburðarblaðs. Ekki var fallist á kæru þar sem gerðar voru ýmsar
athugasemdir við þessa ákvörðun. Þá var ekki fallist á að annmarkar
hefðu verið á framkvæmd prófsins eða að misræmi hefði
verið milli umsagnar og einkunnar (eininga) fyrir
heildarsvip.
|
|
Úrskurður í heild
|
|
|
|
Úrskurður nr. 4, 9. júní 2005
Truflun varð í prófi við það að sími prófdómara
hringdi og var ekki talið útilokað að atvikið hefði haft
truflandi áhrif á frammistöðu nemandans í því verki sem
hann var að leika. Því var umsögn vegna þess
prófþáttar felld niður og einkunn hækkuð.
|
|
Úrskurður í heild
|
|
|
|
Úrskurður nr. 3, 13. apríl 2005
Ekki var fallist á það með kæranda að misræmi væri
milli umsagnar og einkunnagjafar prófdómara í þremur
tilteknum prófþáttum. Að öðru leyti var talið að kæran
varðaði atriði sem ekki sættu kæru til Prófanefndar.
|
|
Úrskurður í heild
|
|
|
|
Úrskurður nr. 2, 21. ágúst 2004
Kæra var byggð á því að prófdómari hefði beðið
nemandann að leika tónstiga sem ekki hefðu verið í
prófbeiðni og að óróleiki vegna þessara mistaka hefði leitt
til þess að nemandinn hefði leikið undir getu á prófinu.
Í úrskurði Prófanefndar var rakið að gögn prófdómara
um þennan prófþátt væru í samræmi við prófbeiðni
tónlistarskólans. Því þótti ekki tilefni til að
gera athugasemd við framkvæmd prófsins.
|
|
Úrskurður í heild
|
|
|
Úrskurður nr. 1, 21. ágúst 2004
Prófanefnd féllst á að ósamræmi væri milli umsagnar
prófdómara og einkunnagjafar (eininga) í fjórum prófþáttum og var
einkunn hækkuð um alls 10 einingar.
|
|
Úrskurður í heild
|
|
|
|
Síðast breytt
4. apríl 2009
|
|
|
|
|