Áfangapróf í rytmískri tónlist
Í aðalnámskrá tónlistarskóla (útg. 2000) segir að
við lok grunnnáms, miðnáms og framhaldsnáms skuli
nemendur þreyta áfangapróf, annars vegar í
hljóðfæraleik og hins vegar í tónfræðagreinum. Ekki er
nauðsynlegt að nemendur ljúki báðum hlutum áfangaprófs
á sama ári, en nemandi getur ekki þreytt miðpróf fyrr en
grunnprófi er að fullu lokið. Sömuleiðis þarf að ljúka
báðum hlutum miðprófs áður en framhaldspróf er tekið. Til að ljúka
framhaldsprófi þarf nemandi að halda sjálfstæða
tónleika, auk þess að standast
próf í hljóðfæraleik og tónfræðagreinum.
Tilgangur áfangaprófa er fjölþættur. Prófunum er
ætlað að skera úr um hvort og að hve miklu leyti nemendur
uppfylla ákveðnar samræmdar kröfur um hæfni. Þeim er
einnig ætlað að afla upplýsinga um nám og kennslu á
vissum sviðum innan tónlistarskóla, meta frammistöðu
nemenda í samræmi við markmið og kröfur aðalnámskrár
og gera nemendum grein fyrir eigin frammistöðu í hverjum
prófþætti. Enn fremur eru prófin lokapróf úr viðkomandi
áfanga innan tónlistarskólans.
Skipulagning áfangaprófa
Prófanefnd tónlistarskóla skipuleggur áfangapróf í
hljóðfæraleik í samvinnu við viðkomandi
tónlistarskóla. Próf geta farið fram hvenær skólaárs
sem er að því tilskildu að hæfur prófdómari fáist til
starfa. Leitast er við að verða við beiðnum skóla um
prófdaga, eftir því sem frekast er kostur, en þar sem
lögð er áhersla á það við skipulagningu áfangaprófa
að nýta starfskrafta prófdómara sem best, verður stundum
að tengja saman próf í fleiri en einum skóla ef um mjög
fá próf er að ræða. Þó er miðað við að nemendur
þreyti áfangapróf í sínum skólum nema samkomulag verði
um annað.
Sérstaklega um framhaldspróf
Til að ljúka framhaldsprófi tónlistarskóla þurfa
nemendur að standast próf í hljóðfæraleik og tónfræðagreinum samkvæmt námskrám, jafnframt því að
ljúka tónleikaþætti framhaldsprófsins.
Að loknu framhaldsprófi í hljóðfæraleik í rytmískri
tónlist skal nemandi halda tónleika með u.þ.b. 60
mínútna langri efnisskrá. Alla jafna er gert ráð fyrir
að tónleikarnir séu samfelldir, án hlés. Efnistök eru
frjáls og engar stílrænar takmarkanir eru gerðar um
efnisskrá en áhersla lögð á að hún sé sannfærandi og
persónuleg, fjölbreytt og krefjandi. Ekki er heldur gerð
krafa um tengingu við efnisskrá undangengins framhaldsprófs
en heimilt er að nota hana eða hluta hennar á tónleikunum.
Þá er heimilt að nota eigin tónsmíðar á tónleikunum,
þær geta verið hluti efnisskrár eða hugsanlega getur
efnisskrá alfarið byggst á eigin tónsmíðum.
Megináherslan er á að nemandi undirbúi og flytji
efnisskrá sem er sannfærandi músíkölsk upplifun frá
upphafi til enda. Nemandi ber ábyrgð á framsetningu
tónlistarinnar, þ.m.t. samsetningu hljómsveitar og
frammistöðu meðleikara. Fyrir frammistöðu á tónleikunum
er gefin umsögn en ekki einkunn. Ekki er nauðsynlegt að
halda tónleikana á sama skólaári og hljóðfæraprófið
fer fram.
Prófanefnd leitast við að láta sama prófdómara meta
hljóðfæraprófið og tónleikana.
Birt 16. febrúar
2010
|