Prófþættir
Samkvæmt aðalnámskrá tónlistarskóla eru
prófþættir á hljóðfæraprófum skilgreindir fyrir
hvert hljóðfæri svo og vægi þeirra. Á áfangaprófi er
frammistaða nemanda í sérhverjum prófþætti metin til
eininga allt að tilgreindu hámarki. Samanlagður
einingafjöldi allra prófþátta á hverju prófi er 100
einingar og er gefið í heilum einingum. Jafnframt fær
nemandi umsögn í orðum um hvern prófþátt. Í flestum
greinum leikur nemandi þrjú verk og eina æfingu. Aðrir
prófþættir eru tónstigar og hljómar, val og
óundirbúinn nótnalestur auk þess sem gefið er fyrir
heildarsvip prófsins. Hér á eftir fara stuttar
skýringar á sameiginlegum prófþáttum á áfangaprófum:
Tónverk og æfingar
Velja skal verkefni á áfangaprófum með hliðsjón af
viðeigandi greinanámskrá. Gæta skal þess að
verkefnaval sé fjölbreytt og að nemendur leiki verk frá
mismunandi tímabilum.
Hljóðfæranemendur þurfa samkvæmt aðalnámskrá að
leika að minnsta kosti eitt tónverk eða æfingu utanbókar
en söngnemendur þurfa að flytja alla efnisskrá prófsins
utanbókar.
Tónstigar og hljómar
Í greinanámskrám er að finna ákvæði um hvaða
tónstiga og hljóma nemendur skulu undirbúa fyrir hvert
áfangapróf. Enn fremur eru í greinanámskrám fyrirmæli
um tónsvið, hraða og annan leikmáta. Á prófi velur
prófdómari hvaða tónstigar og hljómar eru leiknir.
Prófkröfur varðandi leik tónstiga og hljóma eru ekki
fyllilega samræmdar á milli hljóðfæraflokka, enda eðli
og hefðir hljóðfæranna ólíkar.
Útdrættir úr hljómsveitarverkum
Geri greinanámskrá ráð fyrir að nemendur þjálfist í
leik útdrátta úr hljómsveitarverkum skal prófa
sérstaklega í þeim námsþætti á framhaldsprófi. Um er
að ræða útdrætti úr hljómsveitarverkum þar sem
viðkomandi hljóðfæri gegnir veigamiklu hlutverki.
Undirbúa skal a.m.k. staði úr þremur tónverkum.
Prófdómari velur hvað leikið er á prófinu.
Val - grunnpróf
Á grunnprófi er nemanda gefinn kostur á að velja eitt
eftirtalinna viðfangsefna:
- Nemandi spinni út frá gefnu upphafi, einföldu
hljómferli eða lagi. Nemandi getur valið hvort hann
spinnur með eða án undirleiks og er miðað við að
hann hafi haft tækifæri til að undirbúa þennan
prófþátt.
- Nemandi flytji frumsamið verk eða eigin útsetningu.
Þess er ekki krafist að nemandinn hafi skráð
verkið. Heimilt er að leika frumsamið samleiksverk,
að því tilskildu að höfundur gegni þar
lykilhlutverki.
- Nemandi hljómsetji stutta laglínu. Þetta á við um
þá nemendur sem geta leikið hljóma á hljóðfæri
sín.
- Nemandi leiki stutt alþýðulag eða þjóðlag sem
hann hefur lært eftir eyra. Miðað er við að
tónsvið lagsins sé í samræmi við getu nemanda og
námsstig og að lagið sé flutt einradda, með eða
án undirleiks. Söngnemendum er þó skylt að flytja
lagið án undirleiks.
Val - miðpróf
Á miðprófi er nemanda gefinn kostur á að velja eitt
eftirtalinna viðfangsefna:
- Nemandi leiki tónverk að eigin vali. Tónverkið
skal vera af sambærilegri þyngd og önnur
miðprófsverkefni. Þessi valþáttur er þannig
sambærilegur einstökum liðum í prófþætti 1 og
gefur möguleika á að nemandi sýni enn aukna
stílræna breidd í tónlistarflutningi.
- Nemandi spinni út frá gefnu upphafi, einföldu
hljómferli eða lagi. Nemandi getur valið hvort hann
spinnur með eða án undirleiks og er miðað við að
hann hafi haft tækifæri til að undirbúa þennan
prófþátt.
- Nemandi flytji frumsamið verk eða eigin útsetningu.
Þess er ekki krafist að nemandinn hafi skráð
verkið. Heimilt er að leika frumsamið samleiksverk,
að því tilskildu að höfundur gegni þar
lykilhlutverki.
- Nemandi hljómsetji stutta laglínu. Þetta á við um
þá nemendur sem geta leikið hljóma á hljóðfæri
sín.
Val - framhaldspróf
Á framhaldsprófi er nemanda gefinn kostur á að velja á
eitt eftirtalinna viðfangsefna:
- Nemandi leiki tónverk að eigin vali af sambærilegri
þyngd og önnur framhaldsprófsverkefni. Þessi
valþáttur gefur möguleika á að nemandi sýni enn
aukna stílræna breidd í tónlistarflutningi.
- Nemandi leiki samleiksverk þar sem próftaki gegnir
lykilhlutverki. Miðað er við að samleiksverkið sé
af sambærilegri þyngd og önnur
framhaldsprófsverkefni.
- Nemandi leiki tónverk á annað hljóðfæri úr
sömu hljóðfærafjölskyldu og aðalhljóðfæri ef
kostur er gefinn á slíku í viðeigandi
greinanámskrá.
Óundirbúinn nótnalestur
Á áfangaprófi fær nemandi eina mínútu til að líta
yfir lestrardæmið í hljóði og skal síðan flytja
verkefnið einu sinni. Geri greinanámskrá viðkomandi
hljóðfæris ráð fyrir tónflutningi á viðkomandi
áfangaprófi skal hann prófaður undir þessum lið og
gildir þá helming af vægi prófþáttarins (5 einingar af
10). Ef tónflutningur er prófaður fær nemandi sérstakt
tónflutningsdæmi sem leika skal einu sinni eftir einnar
mínútu undirbúningstíma í hljóði. Prófverkefni í
óundirbúnum nótnalestri skulu vera stutt og í samræmi
við markmið í viðeigandi greinanámskrám.
Heildarsvipur
Á áfangaprófum er gefin sérstök einkunn fyrir framkomu,
listræna túlkun, öryggi og yfirbragð prófsins.
|