Miðpróf í tónfræðagreinum vorið 2011
Samræmt miðpróf í tónfræðagreinum vorið 2011
verður haldið þriðjudaginn 5. apríl 2011 og
fimmtudaginn 7. apríl 2011. Tilkynna þarf um nöfn próftaka til Prófanefndar eigi
síðar en föstudaginn 4. mars 2011 á þar til gerðu eyðublaði sem er
að finna hér.
Eins og mælt er fyrir um í Aðalnámskrá
tónlistarskóla: Tónfræðagreinar (2005) verður prófið
þrískipt, þ.e. munnlegt tónheyrnarpróf (20%), skriflegt
próf (60%) og valverkefni (20%). Fjallað er nánar um
hvern þessara prófþátta hér
á síðunni, próf- og matsaðferðum lýst
eins vel og kostur er, auk þess sem birt er sýniseintak af
skriflega prófinu ásamt tóndæmum og fyrirmælum.
Prófgjald verður auglýst síðar.
Áfangapróf í hljóðfæraleik skólaárið 2010-2011
Áfangapróf eru
skipulögð í
samvinnu við viðkomandi tónlistarskóla. Próf geta farið
fram hvenær skólaárs sem er að því tilskildu að hæfur
prófdómari fáist til starfa. Leitast er við að verða við beiðnum skóla um prófdaga, eftir því
sem frekast er kostur, en þar sem lögð er áhersla á það
við skipulagningu
áfangaprófa að nýta starfskrafta
prófdómara sem best, verður stundum að tengja saman próf
í fleiri en einum skóla ef um mjög fá próf er að ræða.
Þó er miðað við að nemendur þreyti
áfangapróf í sínum skólum nema samkomulag verði um
annað.
Prófbeiðnir og verkefni
Beiðnir um próftöku eru sendar Prófanefnd á þar til
gerðum eyðublöðum sem er að finna hér.
Prófbeiðni þarf að hafa borist eigi síðar en fjórum
vikum fyrir þann prófdag sem óskað er eftir.
Prófgjöld skólaárið 2010-2011
Tónlistarskólar greiða Prófanefnd prófgjald vegna
hvers áfangaprófs. Þó er sérstakt gjald innheimt vegna
tónleika á framhaldsprófi. Prófgjöld skólaárið 2010-2011 eru
sem
hér segir:
- Grunnpróf: 6.350 kr.
- Miðpróf: 9.450 kr.
- Framhaldspróf: 12.650 kr.
- Framhaldsprófstónleikar: 21.850 kr.
Prófgjaldið er jafnhá fjárhæð vegna allra
tónlistarskóla. Prófanefnd greiðir allan kostnað vegna
prófdómara, þar á meðal ferðakostnað þegar við á.
Samkvæmt samþykkt fulltrúaráðsfundar Prófanefndar
skal almennt innheimta prófgjald vegna áfangaprófa sem
hætt er við með minna en 14 daga fyrirvara.
Einnig hefur fulltrúaráð Prófanefndar ákveðið að
tónlistarskólar, sem óska eftir prófdómara til að meta
stök grunn- eða miðpróf, án þess að fallast á tilmæli
Prófanefndar um að tengja þau öðrum prófum, skuli
greiða þann umframkostnað sem til fellur.
Prófverkefni
Upplýsingar um prófþætti á áfangaprófum er að finna
í almennum hluta aðalnámskrár tónlistarskóla og
viðkomandi greinanámskrám. Yfirlit yfir prófþætti á
áfangaprófum í einstökum greinum klassískrar tónlistar má einnig finna hér. Yfirlit yfir prófþætti á
áfangaprófum í einstökum greinum rytmískrar tónlistar
má finna hér.
Samkvæmt aðalnámskrá tónlistarskóla bera kennarar
ábyrgð á því að prófverkefni nemenda séu í samræmi
við kröfur námskrár. Prófanefnd fer ekki yfir þau
prófverkefni sem tilgreind eru á prófbeiðnum nema þess
sé sérstaklega óskað.
|