Áfangapróf í hljóðfæraleik og einsöng
Í aðalnámskrá tónlistarskóla (útg. 2000) segir að
við lok grunnnáms, miðnáms og framhaldsnáms skuli
nemendur þreyta áfangapróf, annars vegar í
hljóðfæraleik og hins vegar í tónfræðagreinum. Ekki er
nauðsynlegt að nemendur ljúki báðum hlutum áfangaprófs
á sama ári, en nemandi getur ekki þreytt miðpróf fyrr en
grunnprófi er að fullu lokið. Sömuleiðis þarf að ljúka
báðum hlutum miðprófs áður en framhaldspróf er tekið. Til að ljúka
framhaldsprófi þarf nemandi að halda sjálfstæða
tónleika innan eða utan skólans, auk þess að standast
próf í hljóðfæraleik og tónfræðagreinum.
Tilgangur áfangaprófa er fjölþættur. Prófunum er
ætlað að skera úr um hvort og að hve miklu leyti nemendur
uppfylla ákveðnar samræmdar kröfur um hæfni. Þeim er
einnig ætlað að afla upplýsinga um nám og kennslu á
vissum sviðum innan tónlistarskóla, meta frammistöðu
nemenda í samræmi við markmið og kröfur aðalnámskrár
og gera nemendum grein fyrir eigin frammistöðu í hverjum
prófþætti. Enn fremur eru prófin lokapróf úr viðkomandi
áfanga innan tónlistarskólans.
Skipulagning áfangaprófa
Prófanefnd tónlistarskóla skipuleggur áfangapróf í
hljóðfæraleik í samvinnu við viðkomandi
tónlistarskóla. Próf geta farið fram hvenær skólaárs
sem er að því tilskildu að hæfur prófdómari fáist til
starfa. Leitast er við að verða við beiðnum skóla um
prófdaga, eftir því sem frekast er kostur, en þar sem
lögð er áhersla á það við skipulagningu áfangaprófa
að nýta starfskrafta prófdómara sem best, verður stundum
að tengja saman próf í fleiri en einum skóla ef um mjög
fá próf er að ræða. Þó er miðað við að nemendur
þreyti áfangapróf í sínum skólum nema samkomulag verði
um annað.
Sérstaklega um framhaldspróf
Til að ljúka framhaldsprófi tónlistarskóla þurfa
nemendur að standast próf í hljóðfæraleik og tónfræðagreinum samkvæmt námskrám, jafnframt því að
ljúka tónleikaþætti framhaldsprófsins.
Að loknu framhaldsprófi í hljóðfæraleik skal nemandi
leika 30-60 mínútna langa efnisskrá á tónleikum innan
eða utan skólans. Fyrir frammistöðu á tónleikunum er
gefin umsögn en ekki einkunn. Ekki er nauðsynlegt að halda
tónleikana á sama skólaári og hljóðfæraprófið fer
fram. Séu prófið og tónleikarnir haldnir á sama
skólaári er heimilt að nota alla efnisskrá prófsins á
tónleikunum. Fari tónleikar fram síðar skal a.m.k.
helmingur efnisskrárinnar endurnýjaður. Gæta þarf þess
að efnisskrá sé fjölþætt og vel saman sett.
Prófanefnd leitast við að láta sama prófdómara meta
hljóðfæraprófið og tónleikana.
Síðast breytt 13. febrúar
2010
|