|
Undirbúningur áfangaprófs
Kennarar bera faglega ábyrgð á undirbúningi nemenda og
eiga því að meta hvenær þeir eru tilbúnir til að
þreyta áfangapróf. Kennari skal gæta þess við
undirbúning prófsins að þyngd, fjöldi, inntak og umfang
viðfangsefna sé í samræmi við kröfur námskrár. Ef
kennari er í vafa um hvort prófverkefni sé í samræmi við
kröfur námskrár, getur hann óskað eftir mati
Prófanefndar á viðfangsefninu. Skal slíkt gert eigi
síðar en fjórum vikum fyrir áætlaðan prófdag.
Próftími
Við val prófverkefna þurfa kennarar að hafa í huga að
próftími verði ekki lengri en kveðið er á um í
aðalnámskrá:
- Heildarpróftími á grunnprófi í hljóðfæraleik
eða einsöng skal ekki fara fram úr 30 mínútum.
- Heildarpróftími á miðprófi í hljóðfæraleik eða
einsöng skal ekki fara fram úr 45 mínútum.
- Heildartími á framhaldsprófi í hljóðfæraleik eða
einsöng skal ekki fara fram úr 60 mínútum.
Aðstaða við próftöku
Mikilvægt er að nemendum sem ganga til prófs sé búin
góð aðstaða við próftöku og að skipulag á prófstað
sé gott þannig að unnt sé að fylgja tímaáætlun. Því
þarf tónlistarskóli m.a. að gæta að
eftirfarandi atriðum:
- Prófstofa sé rúmgóð, björt, hlý, vel loftræst og
að hljóð berist ekki frá öðrum stofum.
- Píanó sem nota á fyrir nemendur eða meðleikara sé
sæmilega stillt og jafnt að áslætti.
- Allur nauðsynlegur búnaður sé fyrir hendi, s.s.
píanóstóll, nótnapúlt og fótskemill.
- Hæð nótnapúlta og píanóstóls sé við hæfi
nemenda.
- Prófdómari sé þannig staðsettur að hann geti
auðveldlega stjórnað prófinu og fylgst með próftaka.
- Prófdómari sitji einn við borð og að borð og
stóll prófdómara sé ætlað fullorðnum.
- Prófdómara séu látin í té eintök af verkum og
æfingum próftaka og verði þess sérstaklega gætt að
prófdómari fái í hendur sömu útgáfu prófverkefnanna
og próftaki notaði við prófundirbúninginn.
- Nemendur séu mættir fyrir áætlaðan próftíma.
- Nemendur fái viðunandi aðstöðu til að taka upp
hljóðfæri og til upphitunar.
- Nemendur séu tilbúnir til að spila þegar þeir koma
inn í prófstofu.
- Nemendur hafi aðgang að drykkjarvatni meðan á prófi
stendur, óski þeir þess.
- Prófdómari fái sérstaka aðstöðu til undirbúnings
og frágangs, óski hann þess.
Prófdómara er óheimilt að
ræða niðurstöður einstakra prófa við kennara,
skólastjóra, nemendur eða aðstandendur þeirra. Æskilegt er að kennari geri nemendum og aðstandendum
þetta ljóst áður en próf fer fram. Rétt er einnig að
taka fram að hlutverk prófdómara er einungis að meta
frammistöðu nemenda á áfangaprófum, hvorki að leiðbeina
kennurum né nemendum.
Síðast breytt 19. október 2004
|
|