Framkvæmd hljóðfæraprófs
Prófdómari stjórnar áfangaprófi, en nemandi ræður
þó röð prófþátta.
Kennari próftaka má vera viðstaddur áfangapróf svo og
er skólastjórnanda heimilt að vera við áfangapróf.
Meðleikara er einungis heimilt að vera viðstaddur þá
prófhluta sem hann tekur þátt í. Öðrum er óheimilt að
vera viðstaddir áfangapróf að því undanskildu að
Prófanefnd er heimilt að ákveða að prófanefndarmaður
eða annar fulltrúi nefndarinnar sé viðstaddur próf, m.a.
í því skyni að meta hæfni prófdómara.
Á grunnprófi er kennurum heimilt að aðstoða nemendur
við stillingar hljóðfæra, en á mið- og framhaldsprófi
er ætlast til að nemendur stilli hljóðfæri sín sjálfir.
Ekki er gert ráð fyrir að kennari eða aðrir starfsmenn
skóla, sem mega vera viðstaddir áfangapróf, taki þátt í
prófi að öðru leyti en sem þögulir áheyrendur. Þó er
kennara heimilt að vera meðleikari eða að fletta nótum
fyrir meðleikara.
Telji prófdómari að kennari eða annar starfsmaður
skóla hafi á einhvern hátt truflandi áhrif á próf er
prófdómara heimilt að vísa honum af prófstað.
Prófdómari hlustar á prófverkefni til enda, en þó er
ekki gert ráð fyrir að prófdómari hlusti á alla
tónstiga og hljóma sem undirbúnir hafa verið fyrir
prófið. Prófdómari velur hvaða tónstigar og hljómar eru
leiknir á prófinu. Á áfangaprófum í einsöng stjórnar
prófdómari flutningi söngæfinga sem undirbúnar hafa
verið fyrir prófið og velur hvað flutt er.
Í því tilviki að nemandi flytur verk sem að mati
prófdómarans samræmist ekki þyngdarstigi prófsins, gerir
prófdómari sérstaka skriflega athugasemd þess efnis til
Prófanefndar tónlistarskóla. Einnig þarf ljósrit af
viðkomandi verki að fylgja athugasemd prófdómara. Eigi að
síður hlustar prófdómari á verkið og metur það í
samræmi við viðmiðanir Prófanefndar.
Miðað er við að nemandi hafi í öllum tilvikum
undirbúið valþátt prófsins og er því ekki gert ráð
fyrir að prófað verði í óundirbúinni hljómsetningu að
sinni.
Próf í óundirbúnum nótnalestri eru eign Prófanefndar
tónlistarskóla. Prófdómurum er ekki heimilt að ljósrita
þessi próf, veita kennurum eða nemendum aðgang að þeim
eða nota þau í öðrum tilgangi en Prófanefnd hefur
skilgreint.
Prófdómara er óheimilt að ræða niðurstöður
einstakra prófa við kennara, skólastjóra, próftaka eða
aðstandendur þeirra og ber forráðamönnum skólans að
gæta þess að slíkar aðstæður komi ekki upp.
Ef aðstæður til prófs hafa verið óviðunandi að mati
prófdómara skal hann senda Prófanefnd skriflegar
athugasemdir þess efnis.
Síðast breytt 19. október 2004
|