Einkunnagjöf
Á áfangaprófum í hljóðfæraleik skal bæði gefa
skriflegar umsagnir um hvern prófþátt og einkunn í tölustöfum
(einingum). Frammistaða nemanda í sérhverjum prófþætti
er metin til eininga allt að tilgreindu hámarki. Samanlagður
hámarkseiningafjöldi allra prófþátta á hverju prófi er
100 einingar og skal gefið í heilum einingum. Einkunn er
reiknuð á þann hátt að deilt er í heildareiningafjölda
með 10. Nota skal hundrað eininga kvarða og tilgreina
einkunn með tölunum 1 til 10 og einum aukastaf, t.d. gefa 79
einingar einkunnina 7,9.
Til að standast áfangapróf þarf
nemandi að ná samtals 60 einingum í hljóðfæraleik, sem
samsvarar lágmarkseinkunn 6,0, og jafnframt að hljóta sömu
lágmarkseinkunn í tónfræðagreinum.
Ef prófverkefni fullnægja ekki kröfum aðalnámskrár
tónlistarskóla að mati Prófanefndar tónlistarskóla,
áskilur nefndin sér rétt til þess að hafna prófinu sem
lokaprófi úr viðkomandi áfanga. Í slíkum tilvikum verða
gefin út sérstök vitnisburðarblöð, ásamt skýringu, og
viðkomandi tónlistarskóla send greinargerð, eftir atvikum
áminning, um málið.
Prófskírteini
Prófanefnd gefur út vitnisburðarblöð og
áfangaprófsskírteini fyrir áfangapróf í hljóðfæraleik
og einsöng. Prófskírteini eru send viðkomandi
tónlistarskóla til afhendingar til nemenda sinna nema
skólinn óski sérstaklega eftir því að Prófanefnd sendi
þau beint til próftaka.
Á vitnisburðarblöðum koma fram einkunnir og umsagnir fyrir viðkomandi prófhluta
en áfangaprófsskírteini eru án einkunna og umsagna.
Áfangaprófsskírteini eru gefin út þegar nemandi hefur lokið
áfangaprófi að öllu leyti.
Heimild til að kæra áfangapróf
Nemandi eða forráðamaður hans, kennari eða tónlistarskóli,
sem telur að prófdómari hafi ranglega hafnað verkefnalista
prófs, getur kært ákvörðun prófdómara til Prófanefndar
tónlistarskóla. Þá geta þessir aðilar kært til Prófanefndar
ef þeir telja að prófdómari hafi ekki gætt þeirra reglna
um framkvæmd prófs sem fram koma í aðalnámskrá tónlistarskóla
eða starfsreglum nefndarinnar. Einnig getur kæra tekið til
þess ef greinilegt ósamræmi er í umsögn prófdómara og
einkunnagjöf. Að öðru leyti sætir mat prófdómara ekki kæru.
Kæra skal vera skrifleg og er kærufrestur 14 dagar frá
því að nemanda var tilkynnt niðurstaða prófs. Úrskurður
nefndarinnar skal kveðinn upp innan tveggja mánaða frá því
að kæran barst henni.
Með úrskurði Prófanefndar tónlistarskóla skal ákveðið
hvort próf skuli endurtekið, niðurstöðu prófs breytt eða
það látið standa óhaggað með eða án athugasemda um
framkvæmd þess. Úrskurður Prófanefndar tónlistarskóla
er endanlegur.
Síðast breytt 19. október 2004
|